Herskylda aldrei lögleidd
Lúðvíg Lárusson
- Heimilisfang: Furugerði 6, 108 Reykjavík
- Skráð: 17.04.2011 07:03
Ég legg til að Stjórnlagaráð fjalli um að fella í stjórnarskrána ákvæði um að herskylda íslenzkra ríkisborgara verði aldrei lögleidd.
Byggir þetta á þeirri hefð að hérlendis hefur lengst af ekki verið herskylda og Íslendingar borið gæfu til að forðast hana. Með þessa hefð geta Íslendingar kennt frá sér mikilvægi þess að leysa deilumál með friðsamlegum hætti og samningum.
Ummæli
Störf Stjórnlagaráðs fara fram fyrir opnum tjöldum og við bjóðum öllum sem fylgja samskiptasáttmálanum að setja inn ummæli á vefinn.
Markmið umræðukerfisins er að bjóða upp á málefnalega og uppbyggjandi umræðu. Ærumeiðandi og óvægin ummæli í garð einstaklinga og þrálátar rangfærslur verða fjarlægð.