Opin og auðveld samskipti við almenning. Opinn hugbúnaður.

Sigrún Gunnarsdóttir
  • Heimilisfang: Aflagranda 34 107 R
  • Skráð: 12.04.2011 08:47

Má ég vinsamlega benda á gagnsemi þess að koma upp gagnvirkum vef í tengslum við starf Stjórnlagaráðs, sbr. Skuggaborg á vegum borgarinnar.

Á slíkum vef má varpa fram hugmyndum til almennings sem getur tjáð sig um efnið og skipst á skoðunum.

Þetta myndi vonandi auka áhuga og virkni okkar allra og styrkja starf Stjórnlagaráðs og væri líka lóð og vogarskálar umboðsins sem Stjórnlagaráð starfar skv.

Við þurfum að styrkja umboð Stjórnlagaráðs. Þurfum að tryggja að Alþingi og almenningur taki Stjórnlagaráð alvarlega, virði skoðanir þess og tillögur.

Gerum allt til að styrkja Stjórnlagaráð.

Styrkur Stjórnlagaráðs kemur frá almenningi.

Kær kveðja og bestu óskir til ykkar allra,

Sigrún Gunnarsdóttir

Ummæli

Störf Stjórnlagaráðs fara fram fyrir opnum tjöldum og við bjóðum öllum sem fylgja samskiptasáttmálanum að setja inn ummæli á vefinn.

Markmið umræðukerfisins er að bjóða upp á málefnalega og uppbyggjandi umræðu. Ærumeiðandi og óvægin ummæli í garð einstaklinga og þrálátar rangfærslur verða fjarlægð.

Samskiptasáttmáli Stjórnlagaráðs
  1. Við fögnum uppbyggilegri rökræðu en líðum ekki persónulegar árásir né misnotkun á umræðukerfinu.
  2. Við hvetjum til gagnrýnnar og upplýsandi umræðu forðumst gífuryrði og leggjum ekki öðrum orð í munn.
  3. Við notum einföld en skýr skilaboð og virðum skoðanir annarra.
  4. Allar athugasemdir sem endurspegla fordóma í garð einstaklings eða hópa verða fjarlægðar.
  5. Við áskiljum okkur rétt til að loka á notendur eftir tvær viðvaranir og þriðja brot á þessum sáttmála.

Þessi vefur er sameign okkar sem höfum áhuga á umræðu um málefni stjórnarskrár Íslands. Það er nýmæli að bjóða upp á opna umræðu af þessu tagi við mótun opinberra skjala og við vonumst til að þessi vefur verði skref í rétta átt í þróun umræðuhefðar á netinu.

Vinsamlega tilkynnið brot á sáttamálanum til umraeda@stjornlagarad.is.