Fylgiskjal

Tekið fyrir: 8. ráðsfundur

Breytingartillaga á 8. ráðsfundi - upphafsgrein mannréttindakafla - VÞ

Breytingartillaga Vilhjálms Þorsteinssonar við tillögu nefndar A að texta í áfangaskjali lögð fram á 8. fundi Stjórnlagaráðs 12. maí 2011

1. grein mannréttindakafla orðist svo:

„Öllum skal tryggður réttur til að lifa með mannlegri reisn í réttlátu samfélagi. Margbreytileiki mannlífsins skal virtur í hvívetna.“

(Breytingin er undirstrikuð).