Félagafrelsi

Jón Guðmundsson
  • Heimilisfang: Reykjavík
  • Skráð: 16.06.2011 16:25

74. grein um félagafrelsi.

Í nafni gegnsæis legg ég til að hér standi aðeins: Engan má skylda til aðildar að félagi.

Rétt væri að fella burt núgildandi næstu málsgrein sem afnemur félagafrelsi í reynd.

Félagafrelsi má ekki blanda saman við óskylda hluti eins og aðild að húsfélagi annars vegar og trúfélagi eða stéttarfélagi hins vegar.

Húsfélag er aðild að sameign fasteignar eða lands sem á sér sjálfkrafa stað við aðkomu að eignarhaldi.

Trúfélög eiga að vera frjálst val einstaklings en eiga ekki að ráðast af skráðu félagi móður viðkomandi.

Stéttarfélög eru hagsmunafélög hóps einstaklinga og aðild að þeim ætti hvorki að banna né skylda með lögum.

Ummæli

Störf Stjórnlagaráðs fara fram fyrir opnum tjöldum og við bjóðum öllum sem fylgja samskiptasáttmálanum að setja inn ummæli á vefinn.

Markmið umræðukerfisins er að bjóða upp á málefnalega og uppbyggjandi umræðu. Ærumeiðandi og óvægin ummæli í garð einstaklinga og þrálátar rangfærslur verða fjarlægð.

Samskiptasáttmáli Stjórnlagaráðs
  1. Við fögnum uppbyggilegri rökræðu en líðum ekki persónulegar árásir né misnotkun á umræðukerfinu.
  2. Við hvetjum til gagnrýnnar og upplýsandi umræðu forðumst gífuryrði og leggjum ekki öðrum orð í munn.
  3. Við notum einföld en skýr skilaboð og virðum skoðanir annarra.
  4. Allar athugasemdir sem endurspegla fordóma í garð einstaklings eða hópa verða fjarlægðar.
  5. Við áskiljum okkur rétt til að loka á notendur eftir tvær viðvaranir og þriðja brot á þessum sáttmála.

Þessi vefur er sameign okkar sem höfum áhuga á umræðu um málefni stjórnarskrár Íslands. Það er nýmæli að bjóða upp á opna umræðu af þessu tagi við mótun opinberra skjala og við vonumst til að þessi vefur verði skref í rétta átt í þróun umræðuhefðar á netinu.

Vinsamlega tilkynnið brot á sáttamálanum til umraeda@stjornlagarad.is.