Mannréttindi

Nils Gíslason
  • Heimilisfang: Skógarbraut 1107
  • Skráð: 11.05.2011 19:19

Spurningar og athugasemdir.

1. grein. „Allir eru jafnir fyrir lögum og njóta mannréttinda án manngreinarálits.“
Hverjir eru þessir „allir“?  Aðeins íslenskir ríkisborgarar? Útlendingar á íslenskri grund? Útvalinn hópur útlendinga?


Í 6. grein. „Börnum skal tryggð í lögum sú vernd og umönnun sem velferð þeirra krefst, þar á meðal réttur til fjölskyldulífs.“

Hvað er fjölskyldulíf? Að dvelja hjá móður? Að dvelja hjá föður? Að búa hjá ömmu og eða afa? Eru ekki til lög um það að börn fái að vita hverjir eru kynforeldrar þeirra? Eru það ekki mannréttindi?

11 grein. „Öllum ber réttur til að fá úrlausn um réttindi sín og skyldur.“  Aftur, hverjir eru þessir „allir“?

Ummæli

Störf Stjórnlagaráðs fara fram fyrir opnum tjöldum og við bjóðum öllum sem fylgja samskiptasáttmálanum að setja inn ummæli á vefinn.

Markmið umræðukerfisins er að bjóða upp á málefnalega og uppbyggjandi umræðu. Ærumeiðandi og óvægin ummæli í garð einstaklinga og þrálátar rangfærslur verða fjarlægð.

Samskiptasáttmáli Stjórnlagaráðs
  1. Við fögnum uppbyggilegri rökræðu en líðum ekki persónulegar árásir né misnotkun á umræðukerfinu.
  2. Við hvetjum til gagnrýnnar og upplýsandi umræðu forðumst gífuryrði og leggjum ekki öðrum orð í munn.
  3. Við notum einföld en skýr skilaboð og virðum skoðanir annarra.
  4. Allar athugasemdir sem endurspegla fordóma í garð einstaklings eða hópa verða fjarlægðar.
  5. Við áskiljum okkur rétt til að loka á notendur eftir tvær viðvaranir og þriðja brot á þessum sáttmála.

Þessi vefur er sameign okkar sem höfum áhuga á umræðu um málefni stjórnarskrár Íslands. Það er nýmæli að bjóða upp á opna umræðu af þessu tagi við mótun opinberra skjala og við vonumst til að þessi vefur verði skref í rétta átt í þróun umræðuhefðar á netinu.

Vinsamlega tilkynnið brot á sáttamálanum til umraeda@stjornlagarad.is.